Make your own free website on Tripod.com

Velkomin á heimasíðuna mína!!  : )

malla.is

 

Malla                   Ari                       Krít

 

Ég heiti Magdalena Rós Guðnadóttir en er alltaf kölluð Malla.  Ég er 19 ára og er á síðasta ári í Kvennaskólanum í Reykjavík, ég útskrifast 2. júní og þú mátt endilega koma í útskriftina mína.  Við í Kvennó ætlum að fara í útskriftarferð til Krítar sem er heitasti staðurinn í dag, lagt verður í hann þann 6. júní og eru allir að brjálast úr tilhlökkun. Smellið hér til að komast á kvenno.is.

 

Hérna er mynd af mér!

 

Ein skemmtilegasta hefðin hér í Kvennaskólanum er peysufatadagurinn og halda 3. bekkingar hann hátíðlegan á hverju vori.  Hér má sjá nokkrar myndir frá peysufatadegi okkar frá því í fyrra:

 

 

 

 

Þetta er mynd af hinum myndarlega árgangi 1981 í Kvennaskólanum í Reykjavík  : )

 

 

 

Hérna er bekkurinn minn – 3.(4) nþ

 

 

 

Þetta er Ragga vinkona mín og mamma hennar á góðri stund!!

 

 

Ég á kærasta sem heitir Ari og hann er voða góður!!

 

Hérna er mynd af Ara!


Ari er fæddur 1980 og er því einu ári eldri en ég.  Hann var skiptinemi í Bandaríkjunum í eitt ár og er því einu ári eftir í skóla.  Hann er að útskrifast af stærðfræðibraut úr Verslunarskólanum nú í vor.  Ari var féhirðir nemendafélagsins nú í vetur og tel ég hann hafa staðið sig með ágætum – smelltu hér til að komast á nfvi.is og þá geturu séð nokkrar myndir af alvöru Ara  : )

Verslingar ætla að herma eftir okkur Kvenskælingum og fara í útskriftarferð til Krítar.

 

Hér eru nokkrar myndir frá Krít!

 

 

 

Ég á mörg áhugamál.  Ég æfði fimleika í 12 ár en er nýlega hætt.  Ég tók þátt í uppsetningu Kvennó á Cabaret nú í vetur og það var geðveikt gaman.  Ég dansaði ásamt 5 öðrum stelpum og fyrir þá sem ekki þekkja söguna Cabaret þá vinnum við á Kit Kat klúbbi sem skemmtikraftar en í raun og veru vorum við allar hórur.  Það tóku ca. 70 manns þátt í uppsetningunni og er það stór hluti af jafn litlum skóla og Kvennó.  Leikarar og aðrir sem komu að sýningunni stóðu sig frábærlega, enda var útkoman í samræmi við það.  Þetta var frábær sýning sem allir ættu að sjá!!!!!! 

Smelltu hér til að komast á cabaret.is.

 

Eins og áður sagði þá æfði ég fimleika í 12 ár og er það því mitt helsta áhugamál. Ég æfði með Gerplu í Kópavogi og það er náttúrulega besta félagið.  Mér finnst líka mjög gaman að vera með vinum mínum og hitta annað skemmtilegt fólk.  Eins og flestu fólki á mínum aldri finnst mér líka gaman að fara út að skemmta mér og ég geri það reglulega, sérstaklega á sumrin.

 

Síðastliðin 3 sumur hef ég unnið hjá Landsvirkjun við að græða upp landið.  Þetta er mjög skemmtileg vinna sérstaklega þar sem við erum úti og svo er þetta góður félagsskapur.  Landsvirkjun er líka þekkt fyrir að gera vel við sína starfsmenn og launin eru frekar góð miðað við vinnuna.  Smellið hér til að komast á lv.is og þá getið þið fræðst um þetta stórkostlega fyrirtæki!!